Já, ég er komin heim. Það eru reyndar 2 vikur síðan

5 dögum áður en við fórum út fórum við í 20v sónar og það kom allt vel út úr honum
En þetta ferðalag var æðislegt, enda var þetta svona ferð fyrir 2008 og 2009, því ég verð að fara til útlanda allavega 1x á ári. Þannig að það var eytt annsi miklu á þessum 18 dögum!

Reyndar var þetta ekki beint mikil afslöppun, en við vorum samt róleg á því. Við fórum í Universal Studios, Seaworld, Maggi prófaði SkyDive (samt bara svona æfingastað einhvern, var innandyra). Honum fannst það geðveikt! Svo röltum við International Drive fyrsta daginn, og jiminn hvað það var erfitt! Ég var ekki að meika þetta, þannig að við ákváðum að taka "strætó" í eitt Outlet og versluðum smá, en það var náttla líka hellings labb, þannig að ég var BÚIN Á ÞVÍ eftir daginn. Við fengum okkur svo langþráð rif á Tony Romas, sem er sko það besta í heimi

Svo ákváðum við að taka okkur bílaleigubíl, því Elva litla var ekki að höndla allt þetta labb, og fengum við þennan fína fjölskyldukagga

Þá var byrjað að leita að fötum og dóti á litla baby og Magga

Ég verslaði mér e-ð smá þarna úti, og Maggi aðeins meira á sig, en svo var rest fyrir baby og það var ekki leiðinlegt. Okkur tókst að kaupa kerru, ömmustól, Bumbo stól og borð, fullt, fullt af samfellum og náttgöllum, föt og fleira og fleira! Alveg full ferðataska af fötum

Við keyrðum mikið um, villtumst nokkru sinnum og ef maður villist tekur það svona klukkutíma að komast aftur tilbaka

Svo fórum við í þrjú mall og 2 outlet. Við fórum 1x í sólbað í klukkutíma, en ég var ekkert að höndla hitann nógu vel og svo er ekkert sniðugt fyrir óléttar konur að vera mikið í sólbaði. En við fengum smá lit, sem var fínt því ég var kominn á mikla ljótu áður en ég fór út.
Við fórum í tvær skipulagðar ferðir. Fórum í dagsferð til Miami og byrjaði ferðin kl. 6:15 (vöknuðum kl. 5), en það tók alveg 4 klukkutíma með rútu að fara þangað. Þegar við vorum komin þangað röltum við aðeins um en fórum svo í bátsferð til að skoða hús fræga fólksins

Svo fórum við Maggi á Bubba Gump og fengum okkur rækjur, Maggi smakkaði krabba

Svo kom rúta og keyrði okkur á South Beach. Það var svakalega heitt í götunni fyrir ofan stöndina, við löbbuðum aðeins þar, ég þurfti að setjast á alla bekkina... Svo löbbuðum við tilbaka meðfram ströndinni, á táslunum og leyfðum sjónum að kæla táslurnar

Ég bjó til pils úr kjólnum mínum, með bumbuna bera útí loftið

Svo var fengið sér IceTea og Frappe á Starbucks sem án efa bjargaði lífi mínu!
Í hinni ferðinni fórum við að synda með Manatees (sækýr). Hún byrjaði um 8:30, en þá kom rúta og sótti okkur og fyrsta stopp var að fá sér að borða. Næst var keyrt okkur að Crystal River. Þar var hópnum skipt í tvennt og annar hópurinn fór í Airboat siglingu og sáum við m.a. höfrunga

Það var mjög gaman að prófa þetta. Svo var farið að synda með sækúm. Við fórum í einhvern pínulítinn bát, allir með snorklgræjur, nema ég var bara með myndavélina á lofti. Svo sáust nokkrar sækýr, þannig að fólk fór útí til að reyna að sjá þær betur, en vatnið var svo skítugt e-ð að það sá eiginlega enginn neitt. Þannig að við sigldum aðeins lengra, og þar fundust allavega tveir, og vatnið var mjög tært og þarna var fólkið í góðan hálftíma að synda með sækúm, klappa þeim og skoða þær betur. Það var einmitt baby manatee sem vildi bara vera utan í fólkinu, láta strjúka bumbuna og já vildi bara mikla athygli

Þetta eru án efa sætustu dýr sem ég hef séð!
http://www.google.is/search?hl=is&q=Manatee&lr=
Síðan var farið í dýragarð með villtum dýrum, og garðurinn var rosalega flottur. Ekki svona tilbúinn eins og t.d. SeaWorld var og fleiri, heldur fékk allt einhvern veginn að halda sér, gróður og annað. Þarna sáum við fleiri Manatees, krókódíla, fugla, flóðhest og fleira. Náðum einmitt á myndband flóðhest í fullu fjöri og einnig krókódíl sem gaf frá sér frekar óhugnalegt hljóð!
Ég átti afmæli 28. maí, þá vorum við ennþá úti. Dagurinn byrjaði vel því Maggi gaf mér rosalega flotta eyrnalokka í afmælisgjöf

Síðan fórum við út, fengum okkur að borða, en fórum svo bara fljótlega heim því mér leið e-ð svo illa og lögðum okkur í allavega 3 tíma. Svo var farið fínt útað borða í tilefni dagsins og það var rosalega gott!
Síðustu dagarnir fóru í SeaWorld, sem var æðislegt, ótrúlega skemmtileg upplifun. Einnig fóru þeir í að kaupa það sem við áttum eftir, keyra um og bara rólegt, enda mín orðin freeekar þreytt.
Annars fer að líða að því að ég ætla að opna barnaland/barnanet síðu, en það kemur með tíð og tíma. Læt allavega vita. Þá set ég eflaust nokkrar myndir frá Florida. Svo ætlum við aftur þangað þegar baby verður orðið aðeins stærra og taka fjölskylduferð á þetta